Verkefnis lýsing
Minimize
Ummyndunarsteindir
verkefnisstjóri: Edda Lilja Sveinsdóttir,    byrjar: 1997 Lýkur: 1999

Markmið verkefnisins var að rannsaka hvort hægt sé að greina þenjanlegar leirsteindir í ummynduðu basalti á einfaldan hátt og flokka þannig ummyndað basalt í "gott" eða "slæmt" berg til mannvirkjagerðar. Valin voru steinefni sem hafa verið bergreind með hefðbundinni aðferð, bæði fersk og ummynduð. Gerðar voru nokkrar prófanir á þeim, þunnsneiðar skoðaðar og efnið flokkað í mismunandi stig ummyndunar eftir því hve mörg prósent af efninu reyndist ummyndað; gerð Methylene blue greining, röntkengreiningar; nokkrar "nýjar" steinefnaprófanir reyndar á nokkrum efnanna, steyptir múrstrendingar úr nokkrum efnanna og mæld þensla og rýrnun þeirra og skoðaðar þunnsneiðar úr strendingunum.

Helstu niðurstöður verkefnisins voru þær að einna best samræmi milli mælinga á múrstrendingum og steinsefnamælinga eru við berggreiningu og BM-gildi.


Skýrslur:

Áhrif ummyndunarsteinda á gæði bergs til mannvirkjagerðar


Return



Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Keldnaholti, 112 Reykjavík; sími: 522-9000