Áhrif þjálni og tíðni titrara á einsleitni steypu
verkefnisstjóri: Helgi Hauksson, byrjar: Lýkur: 2009
Markmið með þessari rannsókn var að rannsaka áhrif víbrunar á einsleitni steypu og reyna að meta hvort hætta sé á aðskilnaði í venjulegri C 25 steypu sem er lögð í veggi ef sigmál hennar er komið yfir 200-220 mm. Einnig að gera samanburð á venjulegum víbratorum og hátíðnivíbratorum.
Einnig var markmið að gera samanburð á tveimur gerðum af steypuvíbratorum. Annars vegar venjulegum víbratorum og hins vegar hátíðnivíbratorum. Reynt yrði að meta hvort munur yrði á aðskilnaði fylliefna, fjölda loftbólna á veggflötum, og einnig hvort munur yrði á þrýstiþoli og rúmþyngd borkjarna úr veggjunum eftir því hvor gerð af víbratorum væri notuð.
Þessari rannsók var skipt upp í fjóra áfanga og voru áfangar 1-3 gerðir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, en áfangi 4 var gerður hjá B.M.Vallá ehf.
Skýrsla:
Áhrif þjálni og tíðni titrara á einsleitni steypu
Return