Verkefnis lýsing
Minimize
Tíðni alkalískemmda
verkefnisstjóri: Bjarni Rúnar Þórðarson,    byrjar:  Lýkur: 1984

1984 var metin tíðni alkalískemmda í steyptum húsum, sem byggð voru í Reykjavík og nágrenni fyrir 1983. Var þetta 3. rannsóknin af þessu tagi síðan 1979. samkvæmt mælingum á loftinnihaldi og saltinnihaldi kjarna voru niðurstöður samanborið við fyrri rannsóknir var tíðnin meiri í elstu húsunum, en eftir 1968 var tíðnin minni og engin eftir 1979. Þess má geta að við ræktun í alkalíkeri kom fram alkalíhlaup í einum kjarna úr steypu, sem steypt var eftir 1979. Er það eina dæmið um slíkt til þessa. í framhaldi var ákveðið að rannsaka frekar og ákeðið að teknir skyldu kjarnar úr húsum, sem steypt voru árin 1979-1983, 10 hús pr. ár og kjarnarnir settir í alkalíker og jafnframt ákvarðað , hvaða fylliefni væru í steypunni.

 Í verkefninu kom fram að:

  • Aukning hefur orðið á skemmdum frá síðustu könnun í elstu húsunum, en í húsum sem byggð voru eftir 1968 voru skemmdir álíka eða minni. Án viðgerða aukast skemmdirnar ört með tímanum. Þar sem skemmdir greindust minni en áður er ástæðan aukið viðhald húsa, en þar sem vðgerð hefur nýlega farið fram er oft erfitt að greina eða flokka skemmdirnar.
  • Engar alkalískemmdir fundust í húsum sem byggð voru efitr 1979
  • Rannsókn á borkjörnum sýndi að loftblendi í steypu er oft of lítið til að tryggja verðurnarþol steypunnar. Ástandið hefur þó greinilega batnað eftir 1978
  • Mælingar á salt innihaldi borkjarna sýndu að saltmagn í steypu er talsvert breytilegt en þó yfirleitt mikið fram til ársins 1980. Meðalinnihald salts mældist sem hér segir: 1972-1979 1,12 g NaCl/kg þurr sandur og 1980-1982 0,48 g NaCl/kg þurr sandur, en mikið saltmagn eykur hættu á alkalískemmdum.

Af framangreindu má draga eftirfarandi ályktanir:

Rannsoknir á viðgerðar- og viðhaldsaðgerðum og upplýsingagjöf þar að lútandi hefur skilað sér í bættu viðhaldi húsa með alkalískemmdir.

Þar eð engar alkalískemmdir fundust í steypu yngri en frá árinu 1979, styrkir það vonir um að ekki hljótist vandræði af alkalískemmdum í framtíðinni ef haldið er áfram að blanda kísilryki í sement og þvo steypuefnin sem tekin eru úr sjó. Ekki er þó enn hægt að fullyrða að öryggi sé nægjanlegt, ef virk fylliefni eru notuð.

Steinsteypan hefur batnað hvað verðar  loftblendi og saltinnihald eftir 1979. Loftblendni steypu er þó ekki enn nógu stöðug.


Return



Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Keldnaholti, 112 Reykjavík; sími: 522-9000