Steinsteypunefnd
Minimize

Steinsteypunefnd 40 ára.

Steinsteypunefnd var sett á fót árið 1967 og varð því 40 ára á þessu ári, 2007. Nefndin var sett á fót af iðnaðarráðuneytinu að frumkvæði Haralds Ásgeirssonar, forstjóra Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. Verkefni nefndarinnar var að vinna að rannsóknum sem hindrað gætu grotnun í steinsteypu. Kveikjan að stofnuninni var að svonefndar alkaliskemmdir í steinsteypu höfðu verið uppgötvaðar í USA. Rannsóknir Haralds sýndu að möguleiki á slíkum skemmdum væri einnig á Íslandi.

Nefndin fjármagnaði miklar rannsóknir á sviði alkalívirkni í steinsteypu, en það var ekki fyrr en árið 1979 að sannað var að um alvarlegan vanda var að ræða á Íslandi. Vegna ransóknanna var unnt að gera ráðstafanir gegn slíkum skemmdum strax og hafa ekki fundist alkalískemmdir í húsum síðan þá. Steinsteypunefnd hefur árlega staðið að 5 - 6 rannsóknaverkefnum við Rb ( nú NMÍ ). Á seinni árum hefur rannsóknasviðið verið breikkað þannig að það lýtur nú almennt að þróun og framförum í steypuiðnaði.

Ýtarlega umfjöllun um Steinsteypunefnd og rannsóknir á vegum hennar má sjá hér að neðan í ritinu : Alkalívirkni steinsteypu - saga alkalírannsókna á Íslandi.ðilar að steinsteypunefnd frá upphafi eru: Borgarverkfræðingur, Vegagerðin, Landsvirkjun, Vita- og hafnamálastofnun ( nú Siglingastofnun), Sementsverksmiðjan og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Er alkalískemmdir uppgötvuðust gengu helstu framleiðendur steypu og steypuefna á höfuðborgarsvæðinu einnig, sem einn aðili, í Nefndina en það voru: Steypustöðvarnar B.M. Vallá og Steypustöðin ( nú Mest ) og fylliefnisframleiðandinn Björgun.

Alkalívirkni steinsteypu : Saga alkalírannsókna á Íslandi eftir Guðmund Guðmundsson. Í ritinu segir Guðmundur frá uppgötvun alkalískemmda á Íslandi og rekur þróun rannsókna á alkalívirkni og aðferða til að koma í veg fyrir alkalíþennslur. Ritið geymir jafnframt ýmsan sögulegan fróðleik um rannsóknir á steypuefnum, sementi og mannvirkjum úr steinsteypu.

 

 Tenglar
Minimize
 
 
 
 
 
 
 
 
 

 

Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Keldnaholti, 112 Reykjavík; sími: 522-9000