Smásjártækni við rannsóknir á steinsteypu Áfangaskýrsla I í rannsókn V-266: Steypuefni og innri gerð steinsteypu.
höfundur: Auður Andrésdóttir, jarðfræðingur, útgefið: febrúar 1990
Áfangaskýrslan lýsir því sem hefur verið gert fram að þessu, með það að markmiði að ná valdi á smásjártækni til að geta greint steinsteypu og önnur skyld efni.
Mestur tími hefur farið í að koma upp aðstöðu til að gera gegnsæjar sneiðar af steypu og bergi. Jafnframt hefur verið aflað þekkingar og reynslu við þunnsneiðagerðina, bæði hérlendis og í Danmörku, og er framkvæmdinni lýst í skýrslunni.
Annar meginhluti skýrslunnar fjallar um smásjárrannsóknir á steypu og danska prófunaraðferð, sem verið er að staðfæra. Aðferðinni er m.a. beitt við gæðaeftirlit og skemmdagreiningu..
Return