Trefjasteypur
höfundur: Karsten Iversen og Hákon Ólafsson, útgefið: Desember 1984
Í Skýrslu þessari er gerð grein fyrir rannsóknum, sem framkvæmdar voru við Rb., á áhrifum trefja á eiginleika steinsteypu. Jafnframt er i fyrri hluta skýrslunnar gerð grein fyrir erlendum rannsóknum og gefið eins konar yfirlit yfir tiltæka þekkingu (state of the art).
Tilgangur rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um trefjar og trefjasteypur, sem að gagni mættu koma við mat á notkunarhæfni og hagkvæmni þessarar tækni. Í skýrslunni eru gefnar upplýsingar, sem nauðsynlegar eru við slíkt mat. Þannig kemur fram, hvaða eiginleika trefjasteypu liggur beinast við að nýta, hvaða óheppilegar hliðarverkanir_notkuntrefja hefur í för með sér, hver eru algengustu blöndunarhlutföllin i trefja steypum o.s.frv.
Nýting trefja i framleiðslu steypu eða steypuvara fer mjög eftir þeirri tækni, sem notuð er við viðkomandi framleiðslu. Þvi þarf óhjákvæmilega talsverðar samanburðarrannsóknir fyrir hverja vörutegund þar sem nýta á trefjar til að auka gæði. eða hagkvæmni hennar.
Return